Fréttastofa RÚV
„Við vorum í öðru pönkbandi sem hét fyrst Skerðing, svo breyttist það í Snowed in. Þessi hópur sem var í því bandi ákvað fyrir Músíktilraunir að stofna hardcore-pönkhljómsveit. Það var eiginlega bara vegna þess að trommarinn okkar það ár varð að verða 25 ára. Það er aldurstakmarkið fyrir þátttöku í Músíktilraunum. Þannig að mjög stuttu fyrir umsóknarfrestinn tókum við upp tvö alveg skelfileg demó, sóttum um og spiluðum okkar fyrstu tónleika sem Gaddavír þarna á Músíktilraununum 2017.“ Þannig lýsti Kristján Alexander Reiners Friðriksson, söngvari í Gaddavír, upphafi hljómsveitarinnar í Rokklandi um síðustu helgi. Hljómsveitin var valin til þátttöku í Músíktilraunum á sínum tíma en komst ekki í úrslit. Hún hélt þó áfram og í vor kom út önnur breiðskífa hennar. Sú heitir Akranes Krú og vísar heitið í heimbæ hljómsveitarinnar, sem hefur leikið stórt hlutverk í klæðaburði meðlima, sviðsframkomu hljómsveitarinnar og textum. Harðkjarnapönksveitin Gaddavír frá Akranesi hefur leikið á tveimur stórum þungarokkshátíðum síðustu mánuði og var fulltrúi Íslands í hljómsveitakeppni á Wacken Open Air í Þýskalandi. Rætur hljómsveitarinnar sjást vel í framgöngu hennar á sviði. Gert út á bæjarstoltið „Það er kannski aðallega vegna þess að það er mikið bæjarstolt hérna á Akranesi í kringum þennan gamla gullaldarfótbolta. Okkur hefur fundist mikið stolt hérna sem okkur hefur fundist skemmtilega hallærislegt einhvern veginn og höfum viljað tappa inn á það. Það fylgir því líka að þegar við vorum að byrja í tónlistarsenunni í Reykjavík að við værum úti á landi band, Skagabandið,“ segir Kristján. Guðbergur Jens Haraldsson, trommari hljómsveitarinnar, segir að sveitin hafi haldið sínu striki. „Á tímabili keyptum við sameiginlega ÍA-búninga og vorum í sérmerktri ÍA-treyju. Það entist ekki, við vorum ekki lengi í því. Svo byrjuðum við á því að kaupa þessar flannelskyrtur í ÍA-litunum.“ „Ég meina þetta Skagadæmi er náttúrulega kannski bara til að gefa bandinu einhverja sérstöðu,“ segir Bergur Líndal Guðnason bassaleikari. „Það er ekki mikið af böndum sem eru einhver Skagabönd, sérstaklega í dag. Svo er þetta líka tenging við þá stefnu af tónlist sem við spilum. Það er svona hometown glory dæmi. Við erum dáldið að representera Akranes út af því. Þetta er líka bara skemmtilegt og fyndið pínu, við erum ekki að grínast en okkur finnst þetta gaman og fyndið.“ Spiluðu á einni stærstu útihátíð heims Fyrir ári tók Gaddavír þátt í Wacken Metal Battle á Íslandi, keppni þar sem íslenskar þungarokkshljómsveitir – og, líkt og í tilviki Gaddavírs, harðkjarnasveitir – keppast um að komast á eina stærstu þungarokkshátíð heims: Wacken Open Air í þýskum smábæ sem heitir einmitt Wacken. Gaddavír stóð uppi sem sigurvegari og flaug út til Wacken. Þar atti sveitin kappi við 30 hljómsveitir úr flestum heimsálfum. Aðstæður voru ekki upp á það besta. Fyrir hátíðina hafði rignt mikið og lengi og á því varð engin breyting þá fimm daga sem hún stóð yfir. Áhorfendasvæðin voru á kafi í drullu og rigningin féll á áhorfendur þegar Gaddavír steig á svið. „Það var blautt, kaotískt og ógeðslega gaman,“ segir Kristján söngvari. „Ef við byrjun á hinu blauta þá var það vegna rigningar og ég held að það hafi verið veðurviðvörun í þessum heimshluta á þessum tíma. Kaotískt vegna þess að í þessu veðri voru grey sjálfboðaliðar á Wacken að skutla okkur og öðrum hljómsveitum fram og til baka, til að koma okkur á sviðið og í burtu frá sviðinu. Þau eiga skilið stórt hrós fyrir það. Svo var ógeðslega gaman að taka þátt í þessu og spila á stærstu þungarokkshátíð í heimi.“ Gott fyrir ferilskrána og tengslanetið Sviðið var stærra en íslenskar þungarokkssveitir eiga að venjast. Fyrir framan sviðið var tveggja til þriggja metra bil að girðingu sem aðskildi hljómsveitir og hátíðargesti. „Það var augnablik þegar ég fór af sviðinu og upp að grindverkinu. Þetta var eins og göngutúr að fara upp að grindverkinu.“ Kristján segir þátttöku á Wacken skila hljómsveitinni miklu þar sem hún geti nú vísað til þess að hafa spilað á Wacken. Þar hafi orðið til mikið myndefni og tækifæri hafi gefist til að kynnast fólki í bransanum. „Hann Þorsteinn [Kolbeinsson, skipuleggjandi keppninnar] er rosalega dugegur að fá inn erlendu dómarana sem eru með puttana í hinu og þessu úti. Þó að maður lendi ekki í sæti getur maður alveg eins lent í því að einum dómara finnist hljómsveitin þín frábær og að hún ætti að vinna og hann hjálpar þér kannski í framtíðinni.“ Um páskana spilaði Gaddavír á þungarokkshátíðinni Inferno í Noregi hljómsveitunum Múr, Auðn og Forsmán. Auðn og Múr hafa líka tekið þátt í hljómsveitakeppninni á Wacken, Auðn endaði í þriðja sæti og Múr í því fjórða í Þýskalandi. Þessa dagana fylgir Gaddavír eftir nýrri plötu sinni, fyrst með óvæntum tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi á útgáfudeginum og síðan með útgáfutónleikum í næsta mánuði í húsnæði Lætis í Breiðholti í Reykjavík. Arftakar Gaddavírs sem fulltrúar Íslands á Wacken Metal Battle í sumar verða valdir um helgina. Þá keppa sjö hljómsveitir Chögma, Drungi, Grjót, Miskunn, Show guilt, Sólför og Sót um farseðilinn til Þýskalands. Harðkjarnapönksveitin Gaddavír frá Akranesi hefur leikið á tveimur stórum þungarokkshátíðum síðustu mánuði og var fulltrúi Íslands í hljómsveitakeppni á Wacken Open Air í Þýskalandi. Rætur hljómsveitarinnar sjást vel í framgöngu hennar á sviði.
Go to News Site