Fréttastofa RÚV
Tveir af helstu glæpasagnarithöfundum Íslands eru án efa Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir. Þau eru vinir og halda t.d. saman hátíðina Iceland Noir ár hvert. „Okkur hefur nú dottið það í hug og það er nú meir að segja aðeins komið áleiðis,“ segir Ragnar þegar hann er spurður hvort honum og Yrsu hafi einhvern tímann dottið í hug að skrifa bók saman. „Það er bók í bígerð, já,“ segir Yrsa og Ragnar bætir við að bókin sé þó ekki væntanleg á þessu ári. Ragnar og Yrsa mættu í Miðstöðina á RÚV til þess að ræða glæpaþætti í sjónvarpi og mæltu með þáttum sem áhorfendur ættu að horfa á. Þú getur séð áhugavert spjall við þau í spilaranum hér að neðan. Hvernig verður góð glæpasaga að góðum glæpaþáttum í sjónvarpinu? Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir ræddu glæpaþætti í Miðstöðinni á RÚV. Yrsa og Ragnar voru sammála um að uppskriftin að góðum þætti eða kvikmynd væri að einhverju leyti sú sama og að bók en það þyrfti alltaf að aðlaga bókina að nýju formi. „Ef bók verður að kvikmynd þarf að stytta, ef hún verður að þætti þarf að bæta við,“ segir Yrsa. Miðstöðin eru nýir þættir öll fimmtudagskvöld á RÚV þar sem kafað er ofan í dægurmenningu, með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Þættirnir eru að sjálfsögðu aðgengilegir í spilara RÚV þegar þér hentar.
Go to News Site