Fréttastofa RÚV
Í dag munu Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í Bayern München taka á móti Barcelona í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu. Glódís mun leiða þýska liðið inn á völlinn en það hefur ekki spilað í undanúrslitum síðan 2021. Þá er þetta einnig í fyrsta sinn sem Glódís leikur í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Bayern hefur hingað til aðeins tapað einum leik í keppninni. Sá var gegn Barcelona í deildarhlutanum og þá var það stórt. Spænska liðið vann 7-1 en Glódís segir Bayern hafa dregið mikinn lærdóm af leiknum. „Okkur langaði rosalega að spila eins og við höfum verið að spila í okkar deild og brenndum okkur bara á því. Við vorum að mæta bara allt öðru leveli heldur en við höfum verið að gera í deildinni okkar og þær bara refsuðu fyrir það og kannski fór hausinn aðeins hjá okkur.“ Nú mætir þýska liðið reynslunni ríkara og reynir við sæti í úrslitum Meistaradeildarinnar. Leikur Bayern München og Barcelona hefst klukkan 16:15 á RÚV.
Go to News Site