Collector
Fjórðungi færri fá fjárhagsaðstoð en áður | Collector
Fjórðungi færri fá fjárhagsaðstoð en áður
Fréttastofa RÚV

Fjórðungi færri fá fjárhagsaðstoð en áður

Fimmtán prósent þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg vegna atvinnuleysis hafa þegið greiðslur frá borginni í tólf mánuði eða lengur. Alls fengu 1.173 greidda fjárhagsaðstoð frá borginni í febrúar, af þeim voru 60 prósent atvinnulaus og 29 prósent óvinnufær. Ellefu prósent fengu fjárhagsaðstoð af öðrum ástæðum. Þau sem eru atvinnulaus og hafa þegið fjárhagsaðstoð í tólf mánuði eða lengur eru því um níu prósent af heildarfjölda þeirra sem fá slíka aðstoð, 110 í allt. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Reykjavíkurborg tók saman fyrir velferðarnefnd Alþingis vegna áforma um að stytta rétt til atvinnuleysisbóta úr 30 mánuðum í 18. Færri þiggja aðstoð en áður Fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð frá borginni hefur fækkað um 25 prósent á síðustu fjórum árum, erlendum ríkisborgurum um 15 prósent og Íslendingum um 39 prósent. Fjárhagsaðstoðin er 129.976 krónur á mánuði fyrir einstakling sem býr hjá foreldrum sínum, 259.951 króna fyrir einstakling sem býr einn og 219.021 króna fyrir einstakling sem býr með öðrum. Hjón fá að hámarki 415.922 krónur. Allar eignir umfram húsnæði og bíl skerða fjárhagsaðstoðina. Borgin bendir á að hluti þeirra sem missa bótarétt til atvinnuleysisbóta eigi ekki rétt á fjárhagsaðstoð vegna eignastöðu sinnar. Tveir af hverjum þremur eru útlendingar 67 prósent þeirra sem fá fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg eru erlendir ríkisborgarar. 73 prósent þeirra eru atvinnulaus og 14 prósent óvinnufær. Til samanburðar eru 35 prósent Íslendinga sem þiggja fjárhagsaðstoð atvinnulaus og 61 prósent óvinnufær. Þau sem ekki falla undir þessa flokka eru til dæmis nemar, ellilífeyrisþegar, fólk í hlutastarfi og fæðingarorlofi. Hælisleitendur eru 60 prósent þeirra erlendu ríkisborgara sem fá fjárhagsaðstoð hjá borginni.

Go to News Site