Collector
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Kópavogi | Collector
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Kópavogi
Fréttastofa RÚV

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra flokka í Kópavogi, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem DV greinir frá . Flokkurinn fengi 31,7 prósent atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa. Samfylkingin mælist næst stærst með 24,5 prósenta fylgi og þrjá bæjarfulltrúa. Það er þrefalt á við það sem flokkurinn fékk í kosningum fyrir fjórum árum. Viðreisn mælist með 14,9 prósenta fylgi og tvo bæjarfulltrúa, myndi bæta við sig einu sæti frá síðustu kosningum. Miðflokkurinn fengi 11,0 prósent og einn bæjarfulltrúa samkvæmt könnuninni. Hann náði ekki inn í bæjarstjórn síðast. Framsóknarflokkurinn mælist með 8,7 prósenta fylgi og fengi því einn bæjarfulltrúa en hefur tvo núna. Fimm prósent segjast myndu kjósa Vinstri græn og óháða og 4,1 prósent Sósíalista sem dugar þeim flokkum ekki til sætis í bæjarstjórn. Ef úrslit kosninganna 16. maí yrðu með þessum hætti væri meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í bæjarstjórn fallinn.

Go to News Site