Fréttastofa RÚV
Tveir íslenskir keppendur stigu á stokk á EM í ólympískum lyftingum í dag. Erla Ágústsdóttir keppti í B-hópi í +86 kílóa flokki og gerði vel. Hún tók 103 kíló í snörun og 127 kíló í jafnhendingu, samanlagt 230 kíló sem er persónuleg bæting um tvö kíló. Þórbergur Ernir Hlynsson reið á vaðið og opnaði á 144 kílóum í snörun. Þau fóru upp en hann missti næstu lyftur þar á eftir. Því næst tók við jafnhending og þar komst Þórbergur ansi nálegt sínum besta árangri því hann lyfti 179 kílóum en hans besta er 180. Samanlagt eru þetta 323 kíló. Þórbergur lauk keppni í öðru sæti í C-hóp en hann mun því að líkum enda í 21. sæti af 29 þegar A- og B- hópur hefur lokið sér af.
Go to News Site