Fréttastofa RÚV
Athygli vakti þegar fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir færði Gísla Marteini Baldurssyni, þáttastjórnanda Vikunnar, stærðarinnar köku í tilefni þrjú hundruð þátta afmælis Vikunnar í gær. „Mér finnst þetta pínu farið að vera eins og eitthvað barnaafmæli þar sem er verið að syngja skólasöngva, steppa og drekka te. Á ekki að vera eitthvað djamm hérna?“ spurði Ragnhildur Steinunn þegar hún fékk sér sæti í sófanum hjá Gísla Marteini. „Það er reyndar löngu kominn tími á að það verði eitthvað partý,“ svaraði Gísli Marteinn en við það opnaðist kakan skyndilega við gífurlegan fögnuð áhorfenda. Sjón er sögu ríkari.
Go to News Site