Collector
Kjörsókn dræm í fyrstu kosningunum síðan stríðið á Gaza hófst | Collector
Kjörsókn dræm í fyrstu kosningunum síðan stríðið á Gaza hófst
Fréttastofa RÚV

Kjörsókn dræm í fyrstu kosningunum síðan stríðið á Gaza hófst

Palestínumenn á Vesturbakkanum og á hluta Gaza ganga til sveitarstjórnarkosninga í dag, í fyrsta skiptið eftir að stríðið milli Hamas og Ísrael hófst fyrir rúmlega tveimur árum. Þetta eru fyrstu kosningarnar á Gaza í 20 ár. Niðurstöður seint í kvöld eða á morgun Kjörstaðir voru opnaðir klukkan sjö í morgun og þeim verður lokað klukkan sjö í kvöld. Búist er við niðurstöðum seint í kvöld eða á morgun. Nærri ein og hálf milljón manna er á kjörskrá á Vesturbakkanum og um sjötíu þúsund kjósendur eru á kjörskrá í borginni Deir el-Balah um miðbik Gaza. Borgin varð fyrir valinu þar sem hún er ekki eins illa farin og aðrir staðir á Gaza eftir stríðið milli Ísraels og Hamas-samtakanna. Síðast voru kosningar á Gaza 2006, þegar kosið var til þings. Hamas-samtökin unnu kosningarnar og náðu völdum á Gaza ári seinna frá Fatah-hreyfingunni. Enginn er í framboði fyrir Hamas þrátt fyrir að samtökin stjórni enn um helmingi Gaza. Flestir framboðslistar eru mannaðir frambjóðendum sem styðja Fatah og Mahmoud Abbas forseta en aðrir skilgreina sig sem óháða frambjóðendur. Í nokkrum borgum á Vesturbakkanum er aðeins einn listi í framboði og er því sjálfkjörið í þeim borgum. Skoðanakannanir frá Palestínsku miðstöðinni fyrir stefnumótun og kannanir benda til þess að Hamas sé enn vinsælasta stjórnmálahreyfingin, bæði á Gaza og Vesturbakkanum. Þótt kosningaþátttaka meðal Palestínumanna hafi minnkað smám saman hefur hún verið tiltölulega há í fyrri sveitarstjórnarkosningum, að meðaltali um 50 til 60 prósent, samkvæmt tölum frá kjörnefnd. Abbas undirritaði tilskipun í fyrra um að endurskoða kosningakerfið í samræmi við kröfur frá vestrænum styrktaraðilum. Í kjölfar breytinganna er leyfilegt að kjósa einstaklinga frekar en flokkslista, aldur frambjóðenda var lækkaður og fleiri kvenkyns frambjóðendur leyfðir. Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar sem fór á kjörstaði á Vesturbakkanum í morgun sagði kjörsókn litla, kjörstaðir væru nánast tómir. Samkvæmt upplýsingum frá kjörnefnd höfðu aðeins 15 prósent greitt atkvæði þá. Um klukkan 13 eftir hádegi var hlutfallið komið upp í 24,5 prósent. „Við erum mjög ánægð að geta haft lýðræðislegar kosningar þrátt fyrir þær fjölmörgu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi,“ sagði Abbas við fjölmiðla eftir að hafa greitt atkvæði í Al-Bireh á Vesturbakkanum.

Go to News Site