Collector
Kanna fjárstuðning við Matthildi | Collector
Kanna fjárstuðning við Matthildi
Fréttastofa RÚV

Kanna fjárstuðning við Matthildi

Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort heilbrigðisráðuneytið veiti Matthildi, samtökum um skaðaminnkun, frekari fjárstuðning á þessu ári. Ráðuneytið styrkti samtökin um 1,5 milljónir í desember vegna starfsemi fyrstu tveggja mánaða ársins. Beiðni þeirra um frekari styrk frá í mars hefur ekki verið svarað. Rætt var við formann og sjálfboðaliða Matthildar í síðasta þætti Kveiks. Þar var fjallað um mikla aukningu í notkun krakks hérlendis. Matthildur býður upp á skaðaminnkandi þjónustu fyrir fólk sem reykir fíkniefni. Um 240 manns leituðu til samtakanna í fyrra þegar byrjað var að bjóða upp á þjónustuna. Svala Jóhannesdóttir formaður lýsti áhyggjum af því að loka þurfi starfseminni ef ekki fæst styrkur til hennar frá stjórnvöldum. Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu RÚV segir að ósk samtakanna um fjárstuðning í byrjun mars hafi verið mætt með fundi þeirra með sérfræðingum ráðuneytisins og aðstoðarmanni ráðherra. Á þeim fundi hafi ráðuneytið óskað eftir frekari upplýsingum um fyrirkomulag og eðli þeirrar heilbrigðisþjónustu sem eigi að veita. Þegar þær upplýsingar berast hyggst ráðuneytið fara yfir þær og taka afstöðu til þess hvort samtökin fái frekari styrk.

Go to News Site