Collector
Sara Sif læsti markinu og oddaleikur í vændum | Collector
Sara Sif læsti markinu og oddaleikur í vændum
Fréttastofa RÚV

Sara Sif læsti markinu og oddaleikur í vændum

Haukar tóku á móti ÍBV í fjórða leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta. Haukar unnu 26-23 og því fer viðureignin í oddaleik sem fram fer í Vestmannaeyjum á þriðjudag. Mikið jafnræði var meðal liðanna en Haukar leiddu með einu í hálfleik, 11-10. Haukakonur unnu upp forskot um miðjan síðari hálfleik og þrjú mörk skildu liðin að þegar stundarfjórðungur var eftir, 19-16. Hafnfirðingar héldu þeim mun allt til loka og fögnuðu loks þriggja marka sigri, 26-23. Sara Sif Helgadóttir gerði gæfumuninn í dag þvi varði 21 skot í marki Hauka og endaði með 48% markvörslu. Sara Sif átti stórleik í dag.RÚV / Mummi Lú

Go to News Site