Collector
Mikilvægur sigur Arsenal sem er aftur á toppnum | Collector
Mikilvægur sigur Arsenal sem er aftur á toppnum
Fréttastofa RÚV

Mikilvægur sigur Arsenal sem er aftur á toppnum

Arsenal og Manchester City berjast nú um Englandsmeistaratitilinn og liðin voru jöfn stiga í fyrsta og öðru sæti fyrir leiki dagsins með 70 stig. Með sigri gat Arsenal komist þremur stigum yfir City og það gerði liðið. Það var Eberechi Eze sem reimaði á sig markaskóna á 9. mínútu með góðu skoti utan teigs, 1-0. Það var jafnframt eina mark leiksins og liðið fagnaði kærkomnum sigri. Sigurinn var þó ekki tekinn alveg út með sældinni því Kai Havertz og Eze fóru báðir meiddir af velli. Spennan heldur áfram í toppbaráttunni þegar fjórar umferðir eru eftir. City er nú þremur stigum á eftir Arsenal en liðið á leik til góða.

Go to News Site