Collector
Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum | Collector
Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum
Fréttastofa RÚV

Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum

Kjörsókn jókst eftir hádegi í Palestínu þar sem sveitarstjórnarkosningar fóru fram í dag. Kosið var á Vesturbakkanum og í borginni Deir al-Balah á Gaza. Um ein og hálf milljón var á kjörskrá, þar af um 70 þúsund á Gaza. Þetta voru fyrstu kosningarnar í Palestínu eftir að stríðið á Gaza hófst fyrir tveimur og hálfu ári. Síðast voru kosningar á Gaza 2006, þegar kosið var til þings. Flestir frambjóðendur og listar studdu Fatah og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Aðrir skilgreindu sig sem óháða frambjóðendur og enginn var í framboði fyrir Hamas. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan sjö að staðartíma í morgun, klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma, og var lokað klukkan sjö, sem er klukkan fjögur síðdegis að íslenskum tíma. Kjörsókn var dræm fram eftir degi á Vesturbakkanum og klukkan 14 höfðu 40 prósent kosið. Hún endaði í 53,44 prósentum, samkvæmt kjörnefnd í Ramallah, og var örlítið minni en í síðustu kosningum í mars 2022. Á Gaza var kjörsókn hins vegar miklu minni og endaði í 22,7 prósentum. Kjósendur vilja breytingar Búist er við niðurstöðum í kvöld eða á morgun. Kjósendur vonuðust eftir breytingum. „Ég kýs því það er réttur minn að velja sveitarstjórnarfólk til að veita okkur þjónustu í miðju stríði og þjóðarmorði,“ sagði Ashraf Abu Dan, sem býr í Deir al-Balah á Gaza. Ameena Al-Aqraa sagðist hafa mætt á kjörstað í von um bjartari daga. „Við viljum bætt ástand, ekki halda svona áfram. Vatnið er salt og við fáum það nánast aldrei. Við viljum betri aðstæður, við erum þreytt á þessu lífi.“ Manar Salman, enskukennari í Jericho á Vesturbakkanum, segir kjósendur ætla að kjósa einhverja sem geti bætt samfélagið. „Hluti eins og vatn og að laga göturnar. Við fáum ekki mikinn stuðning að utan, og hernám Ísraela hefur margs konar áhrif. Það takmarkar það sem sveitarfélagið getur gert.“ Sumir veltu fyrir sér tímasetningu kosninganna. Ziad Hassan, kaupsýslumaður frá þorpinu Dura Al-Qaraa, segir íbúa ekki hafa viljað kosningar núna. „Ekki með stríðið á Gaza og áframhaldandi árásum ísraelskra landnema á Vesturbakkanum.“ Kjósendur sem kusu í sveitarstjórnarkosningum í Palestínu í dag vonuðust eftir breytingum. Kjörstöðum var lokað klukkan fjögur að íslenskum tíma og kjörsókn jókst eftir hádegi.

Go to News Site