Fréttastofa RÚV
Ísraelsher gerði loftárásir á að minnsta kosti fjóra staði í suðurhluta Líbanons í dag. Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels fyrirskipaði árásir fyrr í dag í kjölfar meintra brota á vopnahléi af hálfu Hezbollah-samtakanna. Samkvæmt fréttaveitu AFP greina líbanskir ríkisfjölmiðlar frá því að árásir hafi verið gerðar á bæi í héruðunum Bint Jbeil, Tyre og Nabatieh. Í yfirlýsingu segir Ísraelsher skotmörkin hafa verið hernaðarinnviði í Hezbollah í suðurhluta landsins. Þar segir jafnframt að herinn hyggist halda aðgerðum sínum áfram. EPA / ILIA YEFIMOVICH / POOL
Go to News Site