Collector
Flautukarfa í framlengingu og Stjarnan með pálmann í höndunum | Collector
Flautukarfa í framlengingu og Stjarnan með pálmann í höndunum
Fréttastofa RÚV

Flautukarfa í framlengingu og Stjarnan með pálmann í höndunum

Stjarnan tók á móti Tindastóli í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta. Stjarnan vann fyrsta leik liðanna í Síkinu í vikunni og leiddi 1-0. Stólarnir byrjuðu mun betur og unnu forskotið upp hægt og þétt. Í leikhléi munaði 19 stigum á liðinum, Tindastóli í vil. Það var allt annað að sjá Stjörnuliðið í síðari hálfleik og Garðbæingar voru búnir að jafna metin skömmu fyrir lok þriðja leikhluta 68-68. Háspenna var í fjórða leikhluta og liðin skiptust á forystunni. Jafnt var 87-87 þegar tæp mínúta var eftir og Stjarnan í sókn en boltinn rataði ekki í körfuna. Bæði lið fengu raunar tækifæri til að skora sigurkörfu en framlenging varð niðurstaðan. Ótrúlegar lokasekúndur Stjarnan leiddi 103-100 þegar sjö sekúndur voru eftir af framlengingu. Þá skellti Dedrick Basile í þrist, allt jafnt 103-103. Því svaraði Hilmar Smári Henningsson með flautukörfu, lokatölur 105-103. Stjarnan leiðir því 2-0 og Tindastóll þarf nauðsynlega á sigri að halda þegar liðin mætast aftur í Síkinu á miðvikudag.

Go to News Site