Fréttastofa RÚV
Fljótandi sólarorkuver á Cirata-lóni á Vestur-Jövu í Indónesíu. Orkuverið, sem samanstendur af 13 sólarorkueyjum, er stærsta fljótandi sólarorkuverið í Suðaustur-Asíu. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / MAST IRHAM Kína flutti út tvöfalt meira af sólarorkubúnaði í mars en í febrúar. Norska ríkisútvarpið NRK hefur eftir Climate Home News að útflutningur marsmánaðar hafi verið 49% meiri en í fyrri metmánuði, sem var í ágúst á síðasta ári. Þriðjungur útflutningsins á sólarorkubúnaði fór til landa í Afríku og Asíu. Búnaðurinn nægir til að framleiða 68 gígavött af rafmagni sem er jafn mikið og heildarframleiðsla sólarorku á Spáni.
Go to News Site