Fréttastofa RÚV
AP / Manuel Balce Ceneta Donald Trump Bandaríkjaforseti var fluttur burt í skyndi eftir að skot heyrðust í kvöldverði blaðamanna í Hvíta húsinu í Washington í kvöld. Samkvæmt fréttaveitunni AFP er grunaður árásarmaður í varðhaldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Trump þiggur boð í árlegan kvöldverð blaðamanna Hvíta hússins. Ekki liggur fyrir hver atburðarrásin var á þessari stundu en fréttin verður uppfærð.
Go to News Site