Fréttastofa RÚV
Donald Trump og eiginkona hans Melania á kvöldverði blaðamanna fyrr í kvöld.EPA / YURI GRIPAS / POOL Donald Trump Bandaríkjaforseti var fluttur burt í skyndi eftir að skot heyrðust í kvöldverði blaðamanna í Hvíta húsinu í Washington í kvöld. Samkvæmt vitnum og fréttamönnum AFP fréttaveitunnar heyrðust skothvellir á kvöldverðinum og gestir skýldu sér undir borðum. Öryggisverðir fluttu Bandaríkjaforseta og aðra háttsetta gesti kvöldverðarins burt hver á eftir öðrum. Fjölmennt lið lögreglu er á vettvangi og þyrlur fljúga yfir Washington Hilton hótelinu þar sem kvöldverðurinn var haldinn. Samkvæmt fréttaveitunni AFP er grunaður árásarmaður í varðhaldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Trump þiggur boð í árlegan kvöldverð blaðamanna Hvíta hússins.
Go to News Site