Collector
14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut | Collector
14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut
Fréttastofa RÚV

14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut

14 létust þegar sprengja sprakk í vegkanti hraðbrautar í Suðvestur-Kólumbíu í gær. Að minnsta kosti 38 eru særðir. Forseti Kólumbíu, Gustavo Petro, sagði að árásin væri runnin undan rifjum hryðjuverkamanna og eiturlyfjasmyglara. Hann sakaði Ivan Mordisco, eftirlýstan eiturlyfjakóng, um að bera ábyrgð á árásinni í færslu á X. Tveir létust í annarri sprengjuárás í gær nærri herstöð í Cali, sem er þriðja stærsta borg landsins. FARC-skæruliðahreyfingin hafnaði friðarsamkomulagi við ríkisstjórnina 2016 og hluti skæruliðanna hefur markvisst reynt að trufla friðarviðræður við Petro. Öryggisástand í landinu er eitt helsta málefnið í forsetakosningunum sem verða 31. maí. Petro býður sig ekki fram í ár. Vinstrisinnaður öldungadeildarþingmaður, Ivan Cepeda, er með forskot samkvæmt könnunum. Hann er einn af lykilmönnum að baki umdeildri stefnu Petro um að semja við skæruliðahópa. Fast á hæla Cepeda eru tveir hægri sinnaðir frambjóðendur, Abelardo de la Espriella og Paloma Valencia. Allir þrír forsetaframbjóðendurnir hafa fengið líflátshótanir og heyja kosningabaráttu sína undir strangri öryggisgæslu.

Go to News Site