Fréttastofa RÚV
Mulholland-braut, eða Mulholland Drive, eftir David Lynch er besta mynd 21. aldarinnar að mati nærri 150 álitsgjafa. Listi yfir 25 bestu myndir aldarinnar hefur verið birtur á Hugrás , vefriti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Þeir Björn Þór Vilhjálmsson og Bjarni Randver Sigurvinsson höfðu veg og vanda að því að taka saman listann. Þeir höfðu samband við áhugafólk um kvikmyndagerð úr ýmsum áttum og báðu það um að skila inn listum yfir tíu bestu myndir aldarinnar sem nú er að líða. Hver mynd safnaði svo stigum sem þeir Björn og Bjarni tóku saman. Ef mynd rataði í efsta sæti á lista fékk hún tíu stig, fyrir annað sæti fengust níu stig og svo koll af kolli. Ágætis breidd í listanum Kvikmyndaáhugamenn hér á landi eru frekar sammála um ágæti Mulholland Drive, að sögn Björns Þórs. „Hún var rosalega afgerandi sigurvegari hjá okkur. Hún var í fyrsta sæti hjá mörgum, inni á rosalega mörgum listum og mjög oft í fyrsta sæti,“ segir hann. Þegar upp var staðið rakaði Mulholland Drive inn 450 stigum í heildina. Myndin Afætur, eða Parasite, eftir Bong Joon Ho fékk um 120 færri stig. Í þriðja sæti á listanum var svo myndin Chihiro og andaríkið, eða Spirited Away, eftir Hayao Miyazaki. Hvaða kvikmyndir voru í 25 efstu sætunum? 1. Mulholland-akstursleiðin Mulholland Drive (David Lynch: 2001) 2. Afætur Gisaengchung [기생충]/ Parasite (Bong Joon-ho: 2019) 3. Chihiro og andaríkið Sen to Chihiro no kamikakushi [千と千尋の神隠し]/ Spirited Away (Hayao Miyazaki: 2001) 4. Það mun renna blóð There Will Be Blood (Paul Thomas Anderson: 2007) 5. Hringadróttinssaga: Föruneyti hringsins The Lord of the Rings: The Fellowship of the Ring (Peter Jackson: 2001) 6. Málverk af hefðarkonu í logum Portrait de la jeune fille en feu/ Portrait of a Lady on Fire (Céline Sciamma: 2019) 7. Eilíft sólskin hins flekklausa hugar Eternal Sunshine of the Spotless Mind (Michel Gondry: 2004) 8. Ekkert land fyrir gamla menn No Country for Old Men (Ethan Coen & Joel Coen: 2007) 9. Tryllti Max: Slóð heiftar Mad Max: Fury Road (George Miller: 2015) 10. Amélie Le fabuleux destin d’Amélie Poulain/ Amélie (Jean-Pierre Jeunet: 2001) 11. Völundarhús Pans El laberinto del fauno/ Pan’s Labyrinth (Guillermo del Toro: 2006) 12. Að drepa The Act of Killing (Joshua Oppenheimer: 2012) 13. Líf annarra Das Leben der Anderen/ The Lives of Others (Florian Henckel von Donnersmarck: 2006) 14. Öryggissvæðið The Zone of Interest (Jonathan Glazer: 2023) 15. Gamlingjastrákur Oldeuboi [올드보이]/ Oldboy (Park Chan-wook: 2003) 16. Út með þig Get Out (Jordan Peele: 2017) 17. Hringadróttinssaga: Endurkoma konungsins The Lord of the Rings: The Return of the King (Peter Jackson: 2003) 18. Minningar um morð Salinui chueok [살인의 추억]/ Memories of Murder (Bong Joon-ho: 2003) 19. Versta manneskja í heimi Verdens verste menneske/ The Worst Person in the World (Joachim Trier: 2021) 20. Dogville Dogville (Lars von Trier: 2003) 21. Einu sinni var í Hollywood Once Upon a Time … in Hollywood (Quentin Tarantino: 2019) 22. Grand Budapest hótelið The Grand Budapest Hotel (Wes Anderson: 2014) 23. Veiðin Jagten/ The Hunt (Thomas Vinterberg: 2012) 24. Mannanna börn Children of Men (Alfonso Cuarón: 2006) 25. Greyin Poor Things (Yorgos Lanthimos: 2023) Björn Þór segir vinsældalistann frekar breiðan, vissulega séu bandarískar myndir í aðalhlutverki en í efstu 25 sætin ná líka inn myndir frá Danmörku og Noregi, frá öðrum Evrópulöndum og frá Japan og Suður-Kóreu. Á listanum megi auk þess finna bæði mjög framúrstefnulegar myndir sem og það sem kalla má meginstraumsmyndir. „Sem segir eitthvað um það hvernig menningin er orðin, póst-módernisminn sigraði og núna þorum við alveg að setja vinsælar myndir á topp 10 listann okkar.“ 20 íslenskar myndir rötuðu á lista álitsgjafa Af 531 einni kvikmynd sem rataði á lista álitsgjafanna voru 20 þeirra íslenskar. Engin úr þeim hópi rataði í eitt af 25 efstu sætunum en sú íslenska mynd sem hlaut flest stig var Volaða land eftir Hlyn Pálmason. Einni kvikmynd af þeim 25 sem fengu flest stig var leikstýrt af konu. Það var kvikmyndin Málverk af hefðarkonu í logum, eða Portrait de la jeune fille en feu, eftir Céline Sciamma. Hún lenti í 6. sæti. „Kynjahlutföllin voru alveg skelfileg í þessari könnun, þau voru ekki góð,“ segir Björn Þór og bætir því við að það sé ekki endilega hægt að skrifa á mikinn kynjahalla meðal álitsgjafa. Í þeirra hópi voru 80 karlar og 69 konur. „Þannig að þetta var nokkuð jafnt. Hins vegar þá voru á sjötta tug álitsgjafa sem skiluðu inn listum með engum kvikmyndum eftir konur. Þetta voru bæði konur og karlar sem skiluðu inn svona listum.“ „Stórkostlega undurfurðulegir smekkkóngar“ meðal álitsgjafa Líkt og áður segir koma álitsgjafarnir úr mörgum áttum. „Þeir koma alls staðar að. Úr háskólasamfélaginu, nemendur í kvikmyndafræðinni, kennarar í háskólanum, síðan líka bara þjóðþekktir kvikmyndaspekúlantar. Menn sem eru með hlaðvörp um kvikmyndir, menn sem eru áberandi á Facebook með kvikmyndaumræðu eða bara í samfélaginu og svo líka bara fólk sem við vissum að væru miklir kvikmyndaáhugamenn,“ útskýrir Björn Þór. Listinn yfir 25 bestu myndir aldarinnar hefur verið birtur á vef Hugrásar og von er á því að listar allra álitsgjafanna verði birtir í annarri grein. Þar kennir ýmissa grasa, að sögn Björns Þórs. „Þegar þetta er dregið saman í topp 25 listann þá held ég að fólk eigi eftir að þekkja allar myndirnar, svona hér um bil. Þetta eru frægar kvikmyndir. Þegar hins vegar einkalistarnir verða birtir, sem þeir verða í kjölfarið, þá á fólk eftir að sjá hversu stórkostlega undurfurðulegir smekkkóngar tóku þátt í könnuninni.“ Nærri 150 álitsgjafar nefndu alls 531 kvikmynd þegar spurt var út í bestu kvikmyndir þessarar aldar. Nú er búið að taka saman lista yfir þær 25 kvikmyndir sem álitsgjafarnir telja bestar. Einni mynd á topplistanum var leikstýrt af konu. Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, var gestur Kristjáns Guðjónssonar og Lóu Bjarkar Björnsdóttur í Lestinni. Hægt er að hlusta á viðtal þeirra við Björn Þór í spilaranum hér fyrir ofan.
Go to News Site