Fréttastofa RÚV
Þau tíðindi gerðust í dýragarði í Tékklandi í byrjun mánaðarins að fjórir hvolpar jarðúlfa komu í heiminn. Tegundin er mjög erfið í ræktun utan heimkynna sinna. Jarðúlfur, proteles cristatus , er minnsta tegund hýena og lifir helst í Austur-Afríku. Fullorðin vega dýrin í kringum tíu kíló og lifa einungis á termítum og öðrum litlum skordýrum ólíkt öðrum hýenum sem eru rándýr. Lítið er almennt vitað um atferli jarðúlfa, sem eru helst á ferli á nóttunni. Vegna þess, og sérstaks fæðuvals, hefur reynst erfitt að rækta tegundina utan náttúrulegra heimkynna. Það þykja því töluverð tíðindi að tekist hafi að koma fjórum hvolpum í heiminn í Safari Park-dýragarðinum í Dvur Králove í norðausturhluta Tékklands í byrjun apríl. Það tókst líka 2024 og var þá í fyrsta sinn í þrjátíu ár sem heppnaðist að rækta afkvæmi jarðúlfs í evrópskum dýragarði. Þeir eru sjaldséðar skepnur í dýragörðum í Evrópu og utan Tékklands er tegundin aðeins haldin í tveimur görðum í Bretlandi.
Go to News Site