Fréttastofa RÚV
24 ára íslenskur karlmaður lést eftir óhapp við fallhlífarstökk í Odense. Danska lögreglan í Fyns staðfesti þetta við danska miðilinn Extra Bladed . Samkvæmt lögreglu opnaðist fallhlífin ekki almennilega með þeim afleiðingum að maðurinn lést. Verið er að rannsaka slysið nánar. Tilkynningin um slysið barst klukkan 11:30 að staðartíma og búið er að láta aðstandendur vita. Vísir greindi fyrst frá. Fréttin verður uppfærð.
Go to News Site