Collector
Íslandsmótið í badminton: Systraslagur og jöfnun á meti | Collector
Íslandsmótið í badminton: Systraslagur og jöfnun á meti
Fréttastofa RÚV

Íslandsmótið í badminton: Systraslagur og jöfnun á meti

Íslandsmeistarar í badminton voru krýndir í gær. Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson mættu Daníel Jóhannessyni og Róberti Þór Henn í úrslitum tvíliðaleiks karla. Davíð og Kristófer höfðu sigurinn, áttunda árið í röð. Þar með jöfnuðu þeir met Árna Þórs Hallgrímssonar og Brodda Kristjánssonar. „Maður hugsaði fyrir leikinn að við þyrftum að jafna þessa gaura. Þeir eru búnir að vera að þjálfa mann og svona. Maður lítur alltaf upp til þeirra og núna getur maður hnippt í þá og sagt að við eigum jafnmarga,“ segir Kristófer. Þá eru þeir með markmið um að keppa meira á erlendri grundu og öðlast öryggi þar. Davíð og Kristófer kepptu á EM á dögunum og duttu út í fyrstu umferð. „Það var mjög fín reynsla. Svolítið öðruvísi aðstæður. Okkur vantar klárlega að spila á fleiri mótum í svoleiðis höllum til þess að ná spilinu okkar aðeins betur.“ Íslandsmótið í badminton fór fram í gær. Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson sýndu yfirburði sína þegar þeir urðu Íslandmeistarar áttunda árið í röð í tvíliðaleik karla. Systur börðust í tvíliðaleik kvenna. Systraslagur í tvíliðaleik kvenna Í tvíliðaleik kvenna var systraslagur því þar mættu Una Hrund Övar og Sólrún Anna Ingvarsdóttir Hrafnhildi Eddu Ingvarsdóttur og Kötlu Sól Arnarsdóttur. Hrafnhildur og Katla eru nýlega komnar upp úr ungmennaflokki en þær unnu fyrsta leik. Þaðan sýndu Una og Sólrún styrk og unnu næstu tvo og fögnuðu því titlinum í fyrsta sinn. Þær voru vitanlega kátar með sigurinn en hvernig er að mæta systur sinni í úrslitum? „Það er mjög skrítið að keppa á móti systur sinni. Ég reyni bara að horfa ekki á hana þannig að ég sjái ekki að þetta sé hún. Ég reyndi að pæla ekki í því að þetta væri hún,“ sagði Sólrún sem mætti Hrafnhildi systur sinni. Í einliðaleik kvenna stóð Lilja Bu uppi sem sigurvegari eftir spennandi viðureign við Sólrúnu Önnu Ingvarsdóttur sem réðst í oddaleik. Lilja varð í öðru sæti í fyrra en vann nú langþráðan Íslandsmeistaratitil. „Tilfinningarnar eru bara út um allt. Það er erfitt að gera sér grein fyrir þessu, maður hefur verið að æfa mikið og vinna í átt að þessu.“ „Maður er kannski með smá tak á honum“ Þá stóð Kristófer Darri Finnsson uppi sem sigurvegari í einliðaleik karla. Hann mætti Gústav Nilsson í úrslitum en hann varð Íslandsmeistari í fyrra. Kapparnir þekkjast nokkuð vel því Kristófer hefur þjálfað Gústav í gegnum tíðina. „Maður er kannski með smá tak á honum.“ Kristófer segir þó að Gústav hafi vel náð að stríða honum í leiknum. Davíð Bjarni Björnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir eru Íslandsmeistarar í tvenndarleik. Þau mættu Lilju Bu og Einari Óla Guðbjörnssyni í úrslitum. Para-badminton í fyrsta sinn Í dag var svo keppt í parabadminton í fyrsta sinn. Þar varð Hákon Atli Bjarkason Íslandsmeistari í standandi flokki karla og Katrín Sunna Erlingsdóttir fagnaði sigri í standandi flokki kvenna. Hákon Atli er þekktari með borðtennisspaðann í hönd en þar er hann tífaldur meistari. Hann segir badminton og borðtennis íþróttir af svipuðum toga. Bæði eru þau á einu máli um að vilja fjölga iðkendum í badmintoni fatlaðra. „Það er mjög gaman í badminton og ég vona að fleiri komi,“ sagði Katrín Sunna.

Go to News Site