Fréttastofa RÚV
Chelsea og Leeds mættust í seinni undanúrslitaleik ensku bikarkeppni karla í fótbolta í dag. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum en það var Enzo Fernandez sem gerði það fyrir Chelsea á 23. mínútu. 1-0 lokatölur og ljóst að það verða Chelsea og Manchester City sem mætast í úrslitaleik ensku bikarsins í maí. Manchester City tryggði sæti sitt í úrslitum í gær með sigri á Southampton, 2-1. Liðin mætast á Wembley laugardaginn 16. maí. Enzo Fernandez fagnar markinu.EPA / VINCE MIGNOTT
Go to News Site