Fréttastofa RÚV
Þróttur R. tók á mót KA í fjórða leiknum í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í blaki í dag. KA leiddi 2-1 fyrir einvígið og gat því innsiglað titilinn með sigri í dag og það gerði liðið eftir spennandi leik. Heimamenn í Þrótti byrjuðu betur og unnu fyrstu hrinu 25-17. KA menn fundu taktinn í annarri hrinu þegar þeir unnu 21-25. Aftur komust Þróttarar yfir því þeir tóku þriðju hrinu 25-22. KA spilaði afar vel í þeirri fjórðu og komu leiknum í oddahrinu. Þar voru það norðanmenn sem unnu 10-15 og fögnuðu því titlinum. Þetta er annar Íslandsmeistaratitlill KA í röð.
Go to News Site