Collector
Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra | Collector
Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra
Fréttastofa RÚV

Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra

Það er víða kominn tími á vorhreingerningu, og margir létu hendur standa fram úr ermum í dag, á Stóra plokkdeginum. Plokkurum blöskraði magn nikótínpúða og rafretta. Íbúar í Mosfellsdal riðu á vaðið í gær með kápu- og frakkagöngu til að minna á Plokkdaginn. Íbúar í Vesturbænum plokkuðu sitt nærumhverfi í allan dag. Plokkdagurinn var formlega settur í Garðabænum, þar sem fjölmenni var mætt til að plokka. Þeirra á meðal voru Björn Skúlason, forsetamaki, og Jón Karl Ólafsson, sem var mættur með alla fjölskylduna að plokka. Stóri plokkdagurinn er fyrir löngu orðinn fastur liður í vorinu og hefur verið haldinn árlega síðan 2018.

Go to News Site