Fréttastofa RÚV
Keflavík heimsótti KA í fyrsta leik fjórðu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Nýliðar Keflavíkur unnu sinn fyrsta sigur í deildinni. Oliver Heiðarsson kom KA-mönnum yfir á 31. mínútu þegar hann sólaði sig fram hjá markverði og skaut boltanum í netið. Rúmum tíu mínútum síðar kom jöfnunarmark frá Davíð Helga Aronssyni, 1-1. Sigurmark Keflavíkur skoraði Stefn Ljubicic á 60. mínútu og færði Keflavík um leið fyrsta sigurinn á tímabilinu. Keflavík er með fjögur stig eftir jafnmargar umferðir og KA með eitt. Umferðin klárast svo á morgun. Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur.Mummi Lú
Go to News Site