Collector
Valsmenn jafna einvígið við Grindavík | Collector
Valsmenn jafna einvígið við Grindavík
Fréttastofa RÚV

Valsmenn jafna einvígið við Grindavík

Valur og Grindavík mættust öðru sinni í æsispennandi leik í undanúrsitum úrslitakeppni karla í körfubolta í kvöld. Liðin skiptust á forystunni í fyrsta leikhluta og að honum loknum var allt jafnt 19-19. Sömu sögu var að segja í öðrum leikhluta og í leikhléi var staðan 41-41. Kári Jónsson kom Val í 68-57 snemma í fjórða leikhluta. Þá hafði aldrei munað eins miklu á liðunum, enda leikurinn afar jafn. Þá var bitið farið úr sóknarleik Grindavíkur og Valsmenn héldu út og sigldu sigri í hús, 79-72. Kári Jónsson og Callum Lawson voru stigahæstir Valsmanna hvor með 16 stig. Staðan í einvíginu er 1-1. Liðin mætast aftur á fimmtudag í Grindavík. Kári Jónsson skoraði 16 stig í kvöld, öll í seinni hálfleik.Mummi Lú

Go to News Site