Fréttastofa RÚV
Franska strandgæslan og bátur flóttafólks á Ermasundinu, 27. september 2025. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / FADEL DAWOD Franska strandgæslan bjargaði 119 flóttamönnum á Ermasundi á laugardaginn. Fólkið var að reyna að komast yfir sundið til Bretlands á litlum bátum. Einn flóttamaður var meðvitundarlaus og var hann fluttur með þyrlu á spítala í Boulogne á norðurströnd Frakklands. Frakkar og Bretar skrifuðu undir þriggja ára samning á fimmtudaginn um að stöðva flóttamenn sem reyna að sigla yfir Ermasundið. Bresk stjórnvöld ætla að auka greiðslur til franskra stjórnvalda og taka þátt í að fjármagna aðgerðirnar. Á síðasta ári reyndu að minnsta kosti 29 flóttamenn að sigla yfir Ermarsundið. Á þessu ári hafa sex látist við að reyna að fara yfir Ermarsundið.
Go to News Site