Collector
Íslandsmeistarinn fléttar saman fimleika og fasteignasölu | Collector
Íslandsmeistarinn fléttar saman fimleika og fasteignasölu
Fréttastofa RÚV

Íslandsmeistarinn fléttar saman fimleika og fasteignasölu

Fimleikamaðurinn Ágúst Ingi Daðason varð Íslandsmeistari í fjölþraut um síðustu helgi og tók gullið í fimm af sex greinum á Íslandsmótinu í stökum áhöldum. Á milli þess sem Ágúst leggur stund á fimleikana selur hann fasteignir. „Stundum þarf maður að taka símtöl inni í fimleikasalnum. Maður reynir að láta það ekki trufla sig og einbeita sér að æfingunni.“ Ágúst segir starfið þó fara vel með afreksíþróttamennsku. Hann segir að þótt þetta séu tveir ólíkir heimar sé hægt að finna sameiginlega snertifleti í greinunum. „Það þarf mikinn metnað og elju. Maður vinnur mikið í því að verða betri fimleikamaður og betri fasteignasali.“ Fimleikamaðurinn Ágúst Ingi Davíðsson hefur í nægu að snúast. Samhliða því að sanka að sér verðlaunum í fimleikum selur hann fasteignir. Ágúst segir starfið henta afreksíþróttamennsku vel. Hann segist eiga nóg inni og stefnir á Ólympíuleika. Fasteignasalan fjármagnar afreksstarfið Ágúst Ingi varð löggiltur fasteignasali fyrir tveimur árum. Það var engin tilviljun að Ágúst skyldi velja sér þann starfsferil því hann sá að hann ætti möguleika á því að púsla fasteignasölu og fimleikum vel saman. „Aðalástæðan fyrir því að ég er fasteignasali líka er bara vegna þess að það er dýrt að vera íþróttamaður. Maður er að fara í alls kyns ferðir, búnaðurinn kostar, það er kostnaður við mat og svona mætti áfram telja. Þetta er leið sem ég fann. Ég get verið með sveigjanlegan vinnutíma og verið á skrifstofunni fyrir hádegi áður en ég fer á æfingu og svo haldið opin hús eftir æfingu.“ Erfist fimleikagenið í beinan karllegg? Ágúst kemur úr mikilli fimleikafjölskyldu og lítið annað kom til greina en að fara í fimleikana. Pabbi Ágústs, Davíð Ingason, átti langan feril í fimleikum og varð nokkrum sinnum Íslandsmeistari í fjölþraut. Eyþór Ingi Sigurðsson, afi Ágústs, var einnig í fimleikum. „Afi byrjaði í fimleikum á Seyðisfirði og þjálfaði síðan aðeins þegar hann kom í bæinn.“ „Það kom ekkert annað til greina. Ég fylgdist með Íþróttaálfinum þegar ég var lítill og vissi alltaf að ég myndi verða fimleikamaður.“ Á nóg inni og stefnir á Ólympíuleika Ágúst vann nánast allt sem hann gat unnið á Íslandsmótinu í liðinni viku en hann segist þó eiga mikið inni. „Ég er alveg búinn að vera vel yfir 10.000 klukkutíma í fimleikasalnum. Mér finnst ég alls ekki vera búinn að toppa mig, ég er rétt að byrja. Ég er hungraður í að verða betri og ég mun verða betri.“ Þá hefur hann átt stóran draum frá fimm ára aldri og hefur fulla trú á því að hann verði að veruleika. „Ég held að það sé draumur allra fimleikamanna að keppa á Ólympíuleikunum. Það hefur verið draumur hjá mér alveg frá því að ég horfði á Ólympíuleikana 2008 fimm ára. Það er stóri draumurinn. Það eru tvö ár í þetta og ég hef mikla trú á því að ef maður heldur sínu striki þá sé góður möguleiki á því að komast þangað inn.“

Go to News Site