Collector
Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar | Collector
Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar
Fréttastofa RÚV

Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar

Maður varð fyrir stórfelldri líkamsárás á sunnanverðu höfuðborgarsvæðinu. Sá sem fyrir árásinni varð er ekki í lífshættu. Þetta kemur fram í samantekt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um tíðindi kvöldsins og næturinnar. Tveir voru handteknir vegna árásarinnar og vinnur lögregla áfram að rannsókninni. Alls gistu fimm fangaklefa lögreglu í morgun eftir atburði gærkvöldsins og næturinnar. Einn var handtekinn eftir að hafa verið staðinn að akstri undir áhrifum fíkniefna og áfengis með fíkniefni í bílnum. Ölvaður ökumaður var fluttur í fangaklefa eftir árekstur og blóðsýnatöku. Lögregla að störfum. Safnmynd.RÚV

Go to News Site