Collector
Blautt og hvasst | Collector
Blautt og hvasst
Fréttastofa RÚV

Blautt og hvasst

Útlit er fyrir að það rigni og blási á fólk og dýr um land allt framan af degi í dag en norðan- og austan til getur fólk þó átt von á þurru eftir hádegi þegar styttir þar upp að mestu. Næstu daga verður dálítið vindasamt og kólnar þegar líður á vikuna. Í dag verður þó allt að fjórtán stiga hiti, hlýjast á norðaustanverðu landinu. Veðurspá dagsins: Sunnan átta til fimmtán metrar á sekúndu og rigning, en styttir að mestu upp síðdegis á Norðaustur- og Austurlandi. Hvessir um tíma í kvöld. Suðvestlægari á morgun og rigning á köflum en þurrt og bjart veður um landið norðaustanvert. Hiti sjö til fjórtán stig, hlýjast norðaustan- og austanlands, en fer að kólna vestast annað kvöld. Næstu daga verður allhvöss suðvestanátt með rigningu, en að mestu þurrt norðaustantil. Milt í veðri, en kólnar undir kvöld. Vestlægar áttir, dálitlar skúrir eða slydduél og fremur svalt upp úr miðri viku.

Go to News Site