Fréttastofa RÚV
Útlit er fyrir að það rigni og blási á fólk og dýr um land allt framan af degi í dag en norðan- og austan til getur fólk þó átt von á þurru eftir hádegi þegar styttir þar upp að mestu. Í kvöld og nótt hvessir á norðvestanverðu landinu og þá er útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm í vindstrengjum. Í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að varasamt geti verið að aka ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Næstu daga verður dálítið vindasamt og kólnar þegar líður á vikuna. Í dag verður þó allt að fjórtán stiga hiti, hlýjast á norðaustanverðu landinu. Veðurspá dagsins: Sunnan átta til fimmtán metrar á sekúndu og rigning, en styttir að mestu upp síðdegis á Norðaustur- og Austurlandi. Hvessir um tíma í kvöld. Suðvestlægari á morgun og rigning á köflum en þurrt og bjart veður um landið norðaustanvert. Hiti sjö til fjórtán stig, hlýjast norðaustan- og austanlands, en fer að kólna vestast annað kvöld. Næstu daga verður allhvöss suðvestanátt með rigningu, en að mestu þurrt norðaustantil. Milt í veðri, en kólnar undir kvöld. Vestlægar áttir, dálitlar skúrir eða slydduél og fremur svalt upp úr miðri viku. Fréttin var uppfærð eftir að veðurfræðingur Veðurstofunnar birti athugasemd um hvassviðri eða storm.
Go to News Site