Fréttastofa RÚV
Lagið Just Another Day With You var samið á verönd í Nashville vorið 2022. „Innblásturinn að laginu eru litlu augnablikin í daglegu lífi og samskiptin við okkar nánustu, sem virðast hversdagsleg en eru í raun það sem skiptir mestu máli,“ segir Anna Hansen. Hún segir lagið vera hjartnæmt kántrí-popplag sem sameinar norræn poppáhrif og Nashville-kántrístíl. Anna er búsett í Kaupmannahöfn og hefur síðustu ár starfað sem bakraddasöngkona fyrir ýmsa danska listamenn, þar á meðal dönsku popphljómsveitina Aqua. Samhliða því hefur hún byggt upp tengslanet í Nashville með reglulegum ferðum þangað og samstarfi við lagahöfunda þar. Einnig hefur hún staðið að innflutningi á tónlistarfólki frá Nashville til Íslands síðustu tvö ár gegnum tónleikaröðina Nashville Nights Iceland.
Go to News Site