Collector
Aukin hætta á mengun á Gaza | Collector
Aukin hætta á mengun á Gaza
Fréttastofa RÚV

Aukin hætta á mengun á Gaza

Grunnvatn og ræktarland á Gaza eru í aukinni hættu á mengun vegna þess að úrgangsmál hafa verið í miklum ólestri undanfarin tvö ár. Aðgangur að urðunarstöðum er takmarkaður, sorp safnast upp og við bætast tugir milljóna tonna af húsarústum eftir árásir Ísraelshers. Stór svæði Gaza, þar á meðal mikilvægir urðunarstaðir, eru enn lokuð Palestínumönnum eða undir hernaðarlegri stjórn Ísraels, sem torveldar sorphirðu enn frekar. Ruslahaugar hafa víða myndast í eða við íbúahverfi, þar sem margir á flótta hafast við í tjaldbúðum. Skortur á búnaði, eldsneyti og varahlutum hamlar endurvinnslu og annarri úrgangsvinnslu. Umsátur Ísraels hefur aukið skort á Gaza og því leitar fólk í vaxandi mæli á ruslahauga í leit að nýtanlegu efni. Ruslahaugar, húsarústir og hækkandi hitastig hafa jafnframt skapað kjöraðstæður fyrir rottur og skordýr, sem eykur hættu á smitsjúkdómum og öðrum heilsufarsvanda.

Go to News Site