Collector
Halla getur ráðið sér aðstoðarmann | Collector
Halla getur ráðið sér aðstoðarmann
Fréttastofa RÚV

Halla getur ráðið sér aðstoðarmann

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum er lúta að stjórnskipun forseta Íslands sem meðal annars fela í sér að forseti getur ráðið sér aðstoðarmann. Með frumvarpinu getur forseti Íslands, rétt eins og ráðherrar, ráðið til starfa sérstakan aðstoðarmann án auglýsingar. Laun aðstoðarmanns verða 75 prósent af launum forsetaritara. Þær breytingar urðu í meðförum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að forseti mun áfram verða ábyrgur fyrir að ráða forsetaritara, en upphaflegt frumvarp gerði ráð fyrir að sú ráðning yrði í höndum forsætisráðherra. Var það meðal annars gert eftir ábendingu fyrrum forseta, en Ólafur Ragnar Grímsson kom sjálfur fyrir nefndina til að tala fyrir þeirri breytingu. Þá voru gerðar breytingar á greiðslum til handhafa forsetavalds sem eru forseti Alþingis, forsætisráðherra og forseti Hæstaréttar. Þeir fara með forsetavald í fjarveru og forföllum forseta Íslands. Með samþykkt frumvarpsins fá handhafar forsetavalds fasta greiðslu sem nemur 300 þúsund krónum á ári, óháð fjölda þeirra daga sem forseti er erlendis eða getur ekki gegnt störfum sínum af öðrum ástæðum. Um verulega lækkun á greiðslum er að ræða enda skiptist upphæðin á handhafana þrjá. Hingað til hefur upphæðin verið að meðaltali verið um 10 milljónir króna ári.

Go to News Site