Collector
KR áfram með fullt hús á toppnum | Collector
KR áfram með fullt hús á toppnum
Fréttastofa RÚV

KR áfram með fullt hús á toppnum

KR-FH KR tók á móti FH og komst yfir snemma leiks með marki Arons Sigurðarsonar. FH jafnaði hins vegar metin tveimur mínútum síðar með marki Tómasar Orra Róbertssonar. Þá tók KR öll völd og bætti við þremur mörkum; fyrst Eiður Gauti Sveinbjörnsson, svo Amin Cosic og loks Aron aftur. Tómas Orri lagaði stöðuna fyrir FH og 4-2 stóð í hléi og það urðu lokatölurnar. KR hefur unnið alla fjóra leiki sína og skorað 18 mörk og er á toppnum með 12 stig. FH er næstneðst með 1 stig. Mörk leiksins: 1-0 Aron Sigurðarson 6' 1-1 Tómas Orri Róbertsson 8' 2-1 Eiður Gauti Sveinbjörnsson 18' 3-1 Amin Cosic 28' 4-1 Aron Sigurðarson 33' 4-2 Tómas Orri Róbertsson 43' Fram-ÍBV Það voru líka skoruð sex mörk í Úlfarsárdal þegar ÍBV kom í heimsókn til Fram. Fram var í ham og komst í 3-0 með tveimur mörkum Atla Þórs Jónassonar og einu frá Stefáni Þorra Þorbjörnssyni. Róbert Elís Hlynsson minnkaði muninn fyrir ÍBV en tvö mörk frá Kyle McLagan og Kristófer Konráðssyni innsigluðu sigur fram. Mörk leiksins: 1-0 Atli Þór Jónasson 11' 2-0 Atli Þór Jónasson 32' 3-0 Þorri Stefán Þorbjörnsson 49' 3-1 Róbert Elís Hlynsson 72' 4-1 Kyle McLagan 76' 5-1 Kristófer Konráðsson 88' Leikir Breiðabliks og Þórs, ÍA og Víkings og Stjörnunnar og Vals eru í gangi og verður fréttin uppfærð þegar þeim lýkur.

Go to News Site