Collector
KR áfram með fullt hús á toppnum - meistararnir fylgja | Collector
KR áfram með fullt hús á toppnum - meistararnir fylgja
Fréttastofa RÚV

KR áfram með fullt hús á toppnum - meistararnir fylgja

KR-FH KR tók á móti FH og komst yfir snemma leiks með marki Arons Sigurðarsonar. FH jafnaði hins vegar metin tveimur mínútum síðar með marki Tómasar Orra Róbertssonar. Þá tók KR öll völd og bætti við þremur mörkum; fyrst Eiður Gauti Sveinbjörnsson, svo Amin Cosic og loks Aron aftur. Tómas Orri lagaði stöðuna fyrir FH og 4-2 stóð í hléi og það urðu lokatölurnar. KR hefur unnið alla fjóra leiki sína og skorað 18 mörk og er á toppnum með 12 stig. FH er næstneðst með 1 stig. Mörk leiksins: 1-0 Aron Sigurðarson 6' 1-1 Tómas Orri Róbertsson 8' 2-1 Eiður Gauti Sveinbjörnsson 18' 3-1 Amin Cosic 28' 4-1 Aron Sigurðarson 33' 4-2 Tómas Orri Róbertsson 43' Fram-ÍBV Það voru líka skoruð sex mörk í Úlfarsárdal þegar ÍBV kom í heimsókn til Fram. Fram var í ham og komst í 3-0 með tveimur mörkum Atla Þórs Jónassonar og einu frá Stefáni Þorra Þorbjörnssyni. Róbert Elís Hlynsson minnkaði muninn fyrir ÍBV en tvö mörk frá Kyle McLagan og Kristófer Konráðssyni innsigluðu sigur fram. Mörk leiksins: 1-0 Atli Þór Jónasson 11' 2-0 Atli Þór Jónasson 32' 3-0 Þorri Stefán Þorbjörnsson 49' 3-1 Róbert Elís Hlynsson 72' 4-1 Kyle McLagan 76' 5-1 Kristófer Konráðsson 88' Leikir Breiðabliks og Þórs, ÍA og Víkings og Stjörnunnar og Vals eru í gangi og verður fréttin uppfærð þegar þeim lýkur. Víkingur-ÍA Íslandsmeistararnir sýndu ÍA enga miskunn í kvöld og unnu öruggan 4-0 sigur. Öll mörkin komu í seinni hálfleik. Víkingar eru í 2. sæti deildarinnar, 2 stigum á eftir KR en ÍA er með 2 stig í 9. sæti. Mörk leiksins: 1-0 Elías Már Ómarsson 55' 2-0 Valdimar Þór Ingimundarson 62' 3-0 Viktor Örlygur Andrason 85' 4-0 Elías Már Ómarsson 89' Stjarnan-Valur Það var búist við miklu í þessum leik í Garðabæ og viðstaddir fengu nóg fyrir peninginn. 6 urðu mörkin en það voru gestirnir af Hlíðarenda sem héldu á brott með stigin þrjú eftir 4-2 sigur. Valur hefur unnið 3 leiki í röð eftir tap í þeim fyrsta og eru í 3. sæti. Stjarnan tapaði öðrum leiknum í röð. Mörk leiksins: 0-1 Lúkas Logi Heimisson 3' 1-1 Andri Rúnar Bjarnason 17' 1-2 Tryggvi Hrafn Haraldsson 23' 2-2 Andri Rúnar Bjarnason 39' 2-3 Tryggvi Hrafn Haralsson 55' 2-4 Bjarni Mark Duffield 89' Breiðablik-Þór Breiðablik hafði örlítið hikstað í byrjun móts en þó ekki meira en svo að liðið var ósigrað. Það stendur enn því Breiðablik vann Þór með fjórum mörkum gegn engu. Breiðablik skoraði því tvöfalt fleiri mörk í þessum leik en hinum þremur fyrr samanlagt. Breiðablik er með 8 stig og Þór með 6 en Þórsarar hafa unnið og tapað til skiptis í leikjunum fjórum hingað til. Mörk leiksins: 1-0 Kristófer Ingi Kristinsson 20' 2-0 Anton Logi Lúðvíksson 64' 3-0 Davíð Ingvarsson 86' 4-0 Óli Valur Ómarsson 90+3' Staðan í deildinni er hér.

Go to News Site