Fréttastofa RÚV
Maðurinn sem hleypti af skotum á kvöldverði samtaka blaðamanna Hvíta hússins á laugardagskvöld var í dag formlega ákærður. Hann er ákærður fyrir tilraun til að verða Donald Trump, Bandaríkjaforseta að bana og fyrir flutning og notkun á skotvopnum til að beita ofbeldi. Árásarmaðurinn, hinn 31 árs Cole Thomas Allen, á að hafa hlaupið í gegnum öryggisleit á viðburðinum vopnaður haglabyssu, skammbyssu , þremur hnífum og öðrum vopnum. Hann játaði hvorki né neitaði ákærunum á hendur sér fyrir dómi í dag. Verði hann dæmdur sekur gæti hann átt lífstíðardóm yfir höfði sér. Allen fer aftur fyrir dóm á fimmtudaginn en þá verður ákveðið hvort hann skuli áfram sæta gæsluvarðhaldi fram að réttarhöldum. Saksóknarinn Jocelyn Ballantine fór fram á það við dómara í dag að Allen yrði áfram í haldi þar sem hann væri ákærður fyrir hryðjuverk. Allen er ekki beinlínis ákærður fyrir hryðjuverk en tilraun til að bana forseta getur verið skilgreind sem hryðjuverk samkvæmt bandarískum lögum. Ekki vitað hver skaut lögregluþjóninn Yfirvöld í Bandaríkjunum héldu blaðamannafund þegar ákærur yfir Allen höfðu verið opinberaðar. Þar sagði Todd Blanche, settur dómsmálaráðherra, löggæslu á kvöldverðinum ekki hafa brugðist. Hann hrósaði lögreglunni, sérstaklega lögregluþjóni sem særðist í árásinni. „Einn hugrakkur lögregluþjónn særðist, fær aðhlynningu og hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi,“ sagði Blanche. Hann sagðist vilja koma því skýrt fram að hundruð alríkisfulltrúa hefðu verið á milli árásarmannsins og forsetans. Ekki er vitað hvort lögregluþjónninn hafi orðið fyrir skoti Allens eða annars lögregluþjóns. Allen hefur því ekki verið ákærður fyrir að skjóta lögregluþjón, en það gæti breyst. Ætlaði að forgangsraða hátt settum embættismönnum Áður en hann hóf árásina hafði Allnem sent fjölskyldu sinni yfirlýsingu þar sem hann sagðist hyggjast ráðast á embættismenn í ríkisstjórn Trumps. Fréttaveitan CBS greinir frá þessu. Samkvæmt heimildarmönnum CBS úr röðum lögreglu var bróður Allen brugðið við tölvupóstinn sem hann og aðrir fjölskyldumeðlimir fengu. Hann hafi tilkynnt póstinn til lögreglunnar í Connecticut á laugardagskvöldið. Í yfirlýsingunni skrifaði Allen að hann ætlaði að fremja árásina því hann vildi ekki hafa „glæpi“ stjórnvalda á höndum sér. „Ég uni því ekki lengur að barnaníðingur, nauðgari og svikari ati hendur mínar með glæpum sínum,“ skrifaði Allen. Hann nefndi Trump ekki á nafn en sagðist ætla að ráðast á embættismenn „í forgangsröð frá þeim hæst settu til þeirra lægst settu“. Farsímamyndskeið sýna ringulreið eftir skot Bandaríkjaforseti og ráðherrar voru fluttir burt af Washington Hilton-hótelinu þegar Allen hleypti af byssu á laugardagskvöld. Upptökur á símum sem birst hafa eftir árásina sýna glöggt þá ringulreið og ótta sem réði ríkjum eftir að skotunum var hleypt af. Árásarmaðurinn á kvöldverði Bandaríkjaforseta á laugardaginn hefur verið ákærður fyrir tilraun til að drepa forseta og fyrir flutning og notkun á skotvopnum til að beita ofbeldi. Hann sendi fjölskyldu sinni yfirlýsingu áður en hann hleypti af skoti. Árásarmaðurinn var handsamaður strax. Hann hafði skráð sig inn á hótelið fyrr um daginn. Húsleit var gerð á heimili hans í Kaliforníu í gærkvöld. Washington Post segir öryggisgæsluna hafa verið minni en á öðrum viðburðum sem forsetinn hefur sótt. Fara á í saumana á gæslunni á næstu dögum en embættismenn hafa þó sagt hana hafa virkað sem skyldi. Það gerði forseti Bandaríkjanna líka í viðtali í gær. Síðdegis í dag gaf fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins sínar skýringar á árásinni: „Vinstri ofsatrúin og hatrið gegn forsetanum og öllum þeim sem styðja hann og vinna fyrir hann hefur skaðað fjölda fólks og drepið og gerði það næstum aftur um helgina,“ segir Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins.
Go to News Site