Collector
29 drepnir í árás hryðjuverkamanna | Collector
29 drepnir í árás hryðjuverkamanna
Fréttastofa RÚV

29 drepnir í árás hryðjuverkamanna

Að minnsta kosti 29 voru drepnir í árás hryðjuverkamanna á þorpið í Norðaustur-Nígeríu í gær. Árásarmennirnir eru sagðir hafa skotið handahófskennt á ungt fólk sem að spila og horfa á fótbolta í Guyaku-þorpi í Adamawa-héraði. Árásin stóð yfir í nokkrar klukkustundir og árásarmennirnir kveiktu einnig í kirkjum, húsum og mótorhjólum. Héraðið liggur að landamærum Kamerún og mikil óöld hefur verið þar undanfarið vegna árása jíhadista og glæpagengja. Hryðjuverkasamtökin ISWAP hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni. Fylkisstjórinn Ahmadu Umaru Fintiri heitir því að árásarmennirnir verði dregnir til ábyrgðar. Hann sagði að öryggisaðgerðir verði efldar til að tryggja frið á svæðinu. Uppreisn jihadista í Nígeríu, undir forystu Boko Haram og andstæðinganna ISWAP, hefur kostað tugþúsundir manna lífið og milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín í norðausturhluta landsins frá 2009, samkvæmt Sameinuðu þjóðunum. Átökin hafa einnig breiðst út til nágrannalandanna Níger, Tjad og Kamerún.

Go to News Site