Fréttastofa RÚV
RÚV / Sölvi Andrason Aurskriða féll á Grenivíkurvegi við Knarrarnes, nærri Víkurskarði, skömmu eftir miðnætti samkvæmt Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Búið er að loka fyrir umferð um Grenivíkurveg frá sveitabænum Garðsvík að Fnjóská. Umferðinni er beint um Dalsmynni og Vaðlaheiðargöng. Vegurinn verður lokaður í nótt þar sem talin er hætta á áframhaldandi skriðum í kring. Staðan verður endurmetin í fyrramálið í samráði við Vegagerðina og Veðurstofu Íslands.
Go to News Site