Collector
Börnin fyrst – fjár­mögnun til fram­tíðar | Collector
Börnin fyrst – fjár­mögnun til fram­tíðar
Vísir

Börnin fyrst – fjár­mögnun til fram­tíðar

Það er einföld staðreynd að samfélag er aldrei sterkara en sú vernd sem það veitir börnum sínum. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Í Hafnarfirði stöndum við frammi fyrir vaxandi verkefni, sífellt fleiri börn og ungmenni glíma við fjölþættan vanda og þurfa stuðning fyrr en áður. Þetta eru ekki tölur í skýrslum né nafnlaus mál í kerfum. Þetta eru börn sem búa hér í Hafnarfirði, ganga í leik-, grunn- og framhaldsskóla og eru framtíð samfélagsins okkar. Þau þurfa viðbrögð núna, ekki þegar vandinn er orðinn dýrari og erfiðari viðureignar fyrir barnið, fjölskylduna og samfélagið allt. Þess vegna skiptir tíminn öllu máli.

Go to News Site