Collector
Aurskriða féll á Grenivíkurveg – umferð beint um Dalsmynni og Vaðlaheiðargöng | Collector
Aurskriða féll á Grenivíkurveg – umferð beint um Dalsmynni og Vaðlaheiðargöng
Fréttastofa RÚV

Aurskriða féll á Grenivíkurveg – umferð beint um Dalsmynni og Vaðlaheiðargöng

RÚV / Sölvi Andrason Aurskriða féll á Grenivíkurveg við Knarrarnes, nærri Víkurskarði, skömmu eftir miðnætti samkvæmt Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Búið er að loka fyrir umferð um Grenivíkurveg frá sveitabænum Garðsvík að Fnjóská. Umferðinni er beint um Dalsmynni og Vaðlaheiðargöng. Einn ók inn í skriðuna. Ökumaðurinn slasaðist ekki en nokkurt tjón varð á bílnum. Vegurinn verður lokaður í nótt þar sem talin er hætta á áframhaldandi skriðum í kring. Staðan verður endurmetin í fyrramálið í samráði við Vegagerðina og Veðurstofu Íslands.

Go to News Site