Collector
Ætla að byggja allt að 1.400 íbúðir á ríkislóðum | Collector
Ætla að byggja allt að 1.400 íbúðir á ríkislóðum
Fréttastofa RÚV

Ætla að byggja allt að 1.400 íbúðir á ríkislóðum

Á næstu árum stendur til að byggja á bilinu 1.200-1.400 nýjar íbúðir – bæði á lóðum ríkisins og í húsnæði í ríkiseigu sem verður breytt í íbúðir. Þetta er meðal aðgerða Reykjavíkurborgar og ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum sem kynntar voru í dag. Þær eru liður í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Byggja á íbúðir á eftirfarandi stöðum: Borgartúni: 220 íbúðir Grensásvegur: 90 íbúðir Efri hluti Laugavegar: 100 íbúðir Laugarnesvegur: 300 íbúðir Seljavegur: 90 íbúðir Á landi austan Korpúlfsstaða, á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar: 400-600 íbúðir Að því er segir í tilkynningu verða íbúðirnar annars vegar nýbyggingar og hins vegar umbreytt húsnæði sem áður var nýtt undir stofnanir og aðra starfsemi ríkisins. Hluti íbúðanna er hugsaður fyrir hlutdeildarlán, stúdentaíbúðir, íbúðir á vegum leigufélaga stéttarfélaga og búseturétt. Verkefnin verða auglýst á næstunni og þá verður hægt að sækja um að byggja þau. „Í framhaldinu verða lóðirnar og eignirnar seldar til þeirra sem verða fyrir valinu og verkefnin fara svo áfram í frekara skipulagsferli. Næsta skref er að vinna markvisst að uppbyggingu á ríkislóðum og ríkiseignum í fleiri sveitarfélögum,“ segir í tilkynningu.

Go to News Site