Fréttastofa RÚV
Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, viðurkennir að hafa notað rangt orðalag í umdeildri færslu sem hann skrifaði á samfélagsmiðilinn X. Í færslunni sagði Jón Pétur að geðheilsa ungra kvenna væri á hrikalegum stað þrátt fyrir að hvergi búi konur við meira jafnrétti. Vék hann því næst að því að undanfarna áratugi hafi konum í stjórnunarstöðum fjölgað mjög á sama tíma og frjósemi minnkar og skilnuðum fjölgar. „Við bælum ekki niður árþúsunda náttúruval vegna skoðana framsækinna háskólamanna af hugvísindadeildum. Minnkum áherslur á umbúðir, hamstrahjólið og firringu okkar allra vegna.” Þessi orð fóru öfugt ofan í marga og sá utanríkisráðherra ástæðu til að skrifa grein á Vísi þar sem hún sagði að frelsi kvenna væri ekki vandamál og fjölmargir lýstu furðu og hneykslan á samfélagsmiðlum. Rangt og særandi orðaval Jón Pétur kvaddi sér hljóðs á Alþingi í dag og sagði að færslan hafi, með réttu, farið öfugt ofan í marga. „Sá skilningur sem hefur verið lagður í færsluna væri ekki í samræmi við það sem ég vil standa fyrir né það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. Með henni vildi ég ekki gera lítið úr rétti kvenna til menntunar og atvinnuþátttöku eða sjálfstæði þeirra. Orðavalið árþúsunda náttúruval var rangt, særandi og gaf aðra mynd af afstöðu minni en ég ætlaði. Fyrir það biðst ég innilega afsökunar.” Bætti Jón Pétur við að hann telji jafnrétti, menntun eða frelsi kvenna ekki vera vandamál. Hann hafi viljað vekja athygli á geðheilsu ungs fólks en hann hafi ekki gert málstaðnum neinn greiða með orðavali sínu. „Framsetning mín var röng. Það voru mín mistök og ég ber ábyrgð á þeim. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur frelsis en frelsis til að tjá sig. Því fylgir líka ábyrgð. Ef maður orðar hlutina illa þarf maður að viðurkenna og gera betur. Það ætla ég að gera.”
Go to News Site