Collector
Enn í gæsluvarðhaldi vegna stærsta kókaínsmygls Íslandssögunnar | Collector
Enn í gæsluvarðhaldi vegna stærsta kókaínsmygls Íslandssögunnar
Fréttastofa RÚV

Enn í gæsluvarðhaldi vegna stærsta kókaínsmygls Íslandssögunnar

Karlmaður sem handtekinn var á Seyðisfirði 31. mars sætir gæsluvarðhaldi til 8. maí. Maðurinn var staðinn að smygli á 43 kílóum af kókaíni. Það er mesta magn sem yfirvöld hafa lagt á í einni smygltilraun hér á landi. Maðurinn kom hingað til lands með Norrænu. Kókaínið fannst í sendibíl mannsins. Maðurinn var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald daginn eftir að hann var handtekinn. Hann var síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. maí, sá úrskurður var kveðinn upp 10. apríl. Lögregla greinir frá þessu í tilkynningu í dag. Lögreglan staðfestir að 43 kíló af kókaíni hafi fundist við komu mannsins til landsins. Það er í takt við heimildir fréttastofu þegar smyglið uppgötvaðist.

Go to News Site