Fréttastofa RÚV
Fyrirtækið Ribsafari, sem hugðist bjóða upp á ferðir milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja á eigin bát, hefur þurft að hætta við áformin. Fyrirtækið ætlaði að sigla í tengslum við utanvegahlaupið Puffin Run sem fer fram á laugardaginn. Vegna ófullnægjandi viðgerðar á botnloka bátsins þarf að hætta við. Ekki er útlit fyrir að Vestmannaeyjaferjan Herjólfur geti siglt til Landeyjahafnar næstu daga og vont veður og bilun í öðrum mótor bátsins gera það erfitt og tímafrekt að sigla frá Þorlákshöfn. Mikil ólga er í bæjarfélaginu vegna stöðu samgöngumála. Teista, bátur Ribsafari, var hífður upp aftur eftir að bilunin kom í ljós en viðgerð lýkur ekki fyrir helgina. Fyrirtækið segir að jafnvel þótt viðgerð myndi ljúka fyrir helgi væri ekki veðurgluggi til að setja bátinn á flot. Miðað við veðurspá næstu daga megi einnig ætla að engar dýptarmælingar verði framkvæmdar í Landeyjahöfn. „Við tökum enga áhættu þegar kemur að öryggi farþega okkar og mælum með að fólk kanni möguleika á flugi,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins. Ríkisstyrktar flugsamgöngur til og frá Vestmannaeyjum eiga að falla niður í lok viku en eru þegar skertar. Flogið er fjóra daga vikunnar með níu sæta flugvél. Skipuleggjendur Puffin Run ítrekuðu í gær í tengslum við fréttir af erfiðum samgöngum að hlaupið fari fram á tilsettum tíma á laugardag.
Go to News Site