Collector
Flugferðum milli Eyja og Reykjavíkur fjölgað í tvær á dag | Collector
Flugferðum milli Eyja og Reykjavíkur fjölgað í tvær á dag
Fréttastofa RÚV

Flugferðum milli Eyja og Reykjavíkur fjölgað í tvær á dag

Samningur um áætlunarflug milli Eyja og Reykjavíkur verður framlengdur og flugferðum fjölgað í tvær á dag. Þetta kemur fram í tilkynningu Innviðaráðuneytisins og segir ráðuneytið þetta gert til að bregðast við erfiðleikum í samgöngumálum í Vestmannaeyjum síðustu vikur. Ein ferð verður farin á morgun, 29. apríl, en frá og með næsta fimmtudegi, 30. apríl, og til 15. maí verður flogið tvisvar á dag, alla daga vikunnar. Vonast er til að Landeyjarhöfn verði opnuð í næstu viku, gangi öldu- og veðurspár eftir. Samkvæmt ölduspá er áætlað að dýpkun Landeyjahafnar geti hafist á ný seinni partinn á fimmtudag eða á föstudag. Vonast er til að ásættanlegt dýpi verði komið í höfnina fyrir Herjólf þann 7. maí. Vonast eftir betri tíð með komu Jan de Nul Búist er við miklum úrbótum í rekstri hafnarinnar næsta haust en þá tekur belgíski verktakinn Jan de Nul við dýpkun. Vegagerðin sagði frá því snemma í mánuðinum að gerður hefði verið samningur við fyrirtækið um dýpkun hafnarinnar til ársins 2029. Landeyjarhöfn hefur verið lokuð frá því í janúar þar sem of grunnt er í innsiglingu og hafa veðurskilyrði verið óhagstæð sem hefur torveldað dýpkun hafnarinnar. Þá kom einnig upp bilun í Herjólfi sem gerir það að verkum að skipið hefur siglt á einni vél. Viðgerð á vélinni er þegar hafin. Vonir standa til að Herjólfur III geti verið kominn á haffæri þriðjudaginn 5. maí. Herjólfur III mun þá geta siglt og verið til afleysinga sem varaskip fyrir Herjólf IV, sem hefur siglt á skertum afköstum síðustu vikur. Í tilkynningu Innviðaráðuneytisins segir að skoðaður hafi verið sá möguleiki að fá annað skip erlendis frá til að sinna dýpkun. Talið var að það hefði tekið of langan tíma að fá skipið til landsins.

Go to News Site