Fréttastofa RÚV
Jitu Munda, indverskur karlmaður úr stjórnarskrárvörðu ættbálkasamfélagi, gróf lík systur sinnar upp og bar það inn í útibú Indian Overseas-bankans til að sanna að hún væri látin eftir að starfsfólk bannaði honum að taka fé út af reikningum hennar án framvísunar dánarvottorðs. Það hafði Munda ekki í fórum sínum og AFP-fréttaveitan hefur eftir yfirmanni útibúsins að honum hafi greinilega hitnað í hamsi og rokið út. Starfsfólki og öðrum viðskiptavinum hafi verið mjög brugðið þegar hann birtist með lík systur sinnar á bakinu, að hluta til vafið í plast, þannig að leggjabeinin voru sýnileg. Ljóst sé að Munda hafi hvorki þekkt gildandi reglur né viljað fara eftir leiðbeiningum bankans. Málið verði leyst umsvifalaust og hann framvísi dánarvottorði systurinnar. Skráning fæðinga og dauðsfalla er lögbundin á Indlandi en tafir geta orðið á útgáfu vottorða, ekki síst á strjálbýlum svæðum.
Go to News Site