Vísir
Karl þriðji, konungur Bretlands, ávarpaði í gær sameinaðar deildir bandaríska þingsins. Það gerði hann fyrstur breskra kónga en móðir hans var fyrsta drottningin til að ávarpa þingmenn með þessum hætti, árið 1991.Bandaríkjamenn fagna um þessar mundir því að 250 ár eru liðin frá því að þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Í ræðu sinni ítrekaði konungurinn menningarleg tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, þó samskipti ríkjanna hafi beðið hnekki að undanförnu.
Go to News Site