Collector
Rafræn slagsíða í Undiröldunni | Collector
Rafræn slagsíða í Undiröldunni
Fréttastofa RÚV

Rafræn slagsíða í Undiröldunni

Laufey - Madwoman Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir er á siglingu þessa dagana og sendi frá sér nýlega lagið Madwoman. Lagið er tekið af plötu hennar A Matter of Time : The Final Hour, er í hennar elegant jazzaða stíl og fjallar um misheppnað samband og tilfinningalegt ójafnvægi. Unnsteinn Manuel - Bergnuminn Unnsteinn Manuel Stefánsson hefur sent frá sér lagið Bergnuminn af plötunni Gæðablóð. Lagið er frumsamið gospel-popp eftir Unnstein og Kristófer Rodriguez Svönuson en textann samdi hann með Þóru Karítas Árnadóttur. Undiraldan þriðjudaginn 28. apríl Rafpoppið er í meirihluta í Undiröldunni þessa vikuna þar sem er boðið upp á nýtt efni frá Laufeyju, Unnsteini Manuel, Lúpínu og fleirum. Lúpína - Fairytales Shouldn't End Fairytales Shouldn’t End er önnur útgáfa Lúpínu af væntanlegri stuttskífu sem heitir Light in the Dark. Lagið segir hún ófyrirsjáanlegt popplag um tímann, og stundirnar sem við óskum okkur að lifi að eilífu. Lagið er samið af Lúpínu sjálfri í samstarfi við Grím H. Einarsson og Claire Nichols. Jónfrí - Djúpfalsað efni Jónfrí hafa sent frá sér lagið Djúpfalsað efni þar sem þeir senda snekkjurokk og diskó í tímabundið leyfi. Lagið segir Jón að sé „teknóskotinn indí smellur sem hljómar eins og Tame Impala og Pálmi Gunnarsson í full Þorpara mode myndu ákveða að rífa í sundur dansgólfið á Berghain. Enginn afsláttur, bara keyrsla.” Álfgrímur - Rósavín Tónlistarmaðurinn Álfgrímur Aðalsteinsson hefur sent frá sér lagið Rósavín sem hann sem hann semur með Kusk, Óvita og Húna. Lagið kom út 30. apríl og er að finna á plötunni Hjartnætti en Gunnar Gunnarsson Norðfjörð spilar á píanó og Reynir Snær Magnússon á stálgítar. Geimfuglarnir - Ástarlífsins paradís Geimfuglarnir eru rafrænt afsprengi Geirfuglanna og hafa sent frá sér breiðskífuna Rauðvík en hún kom út á sunnudaginn. Lagið Ástarlífsins paradís er eftir Frey Eyjólfsson og Þorkel Heiðarsson en textinn eftir Frey og Þorgerði Þorkelsdóttur. Mollý Jökulsdóttir - Aftertaste Mollý Jökulsdóttir kynnir þessa dagana smáskífu mína - Aftertaste sem kemur út 1. maí á Chapter Eight Records. Mollý er íslensk tónlistarkona búsett í Danmörku og Aftertaste er önnur smáskífa hennar á Chapter Eight í ár. Sú fyrsta, The Worst Idea (ásamt NAVAH), er í útvarpsspilun bæði heima og erlendis auk þess sem hún hlaut annað sætið sem Best Electro Act á Radio WigWam verðlaununum í janúar 2026. Undiraldan á Spotify

Go to News Site